Nikon 1 J1

Í lífsins önn gefast fá tækifæri til að ná myndum af ástvinum, og því þarf myndavél sem bregst hratt við.

Hin afar smáa Nikon 1 J1 myndavél með skiptanlegri linsu er ætlað að hugsa hratt og bregðast jafnvel enn hraðar við og hún býður þér allt sem þarf til að ná frábærum myndum og kvikmyndum.

Hún er nógu meðfærileg til að hafa hana með sér hvert sem er og er auðveld í notkun. Þú getur náð myndum þínum með enn meiri hraða, einfaldleika og gleði en áður.

 

    Háhraða AF CMOS-flaga: stillir fókusinn hraðar og af meiri nákvæmni en nokkru sinni áður

    Háhraðaraðmyndataka: tekur allt að 60 ramma á sekúndu af myndum í fullri upplausn

    Meðfærilegt kerfi lítið myndavélarhús og skiptanlegar linsur í ýmsum litum

    Byltingarkenndar tökustillingar: Skyndimynd á hreyfingu og Snjallmyndaval

    Notandavænar aðgerðir: skýrar valmyndir, handhæg stilliskífa og innbyggt flass

 

    Nikon 1: Snjallt og afar meðfærilegt myndavélarkerfi. Úrval lítilla 1 NIKKOR skiptanlegra linsa er í boði. Þú nýtur þess að fanga heiminn með þessari hraðvirku og einföldu myndavél.

    CMOS-myndflaga á CX-sniði: skilar þér frábærum ljós- og kvikmyndum. Skilar afbragðs jafnvægi á milli kerfisstærðar, hraða, ljósnæmi, upplausn og dýptarskerpu. Gerir þér kleift að fanga 10,1 megapixla myndir af myndefni á miklum hraða í hvaða ljósi sem er.

    Háhraða sjálfvirkur fókus: stillir fókusinn svo hratt að þú getur smellt af án tafar. Er búin ótrúlegum fjölda fókuspunkta sem skilar alltaf mikilli skerpu. Skiptir tafarlaust á milli AF-hlutagreini til að ná skínandi myndefni eða myndefni á hreyfingu og AF-birtuskilanema ef myndefnið er kyrrt eða illa upplýst.

    EXPEED 3 myndvinnsla hönnuð til að skila hraða og afköstum sem eiga enga sína líka, í hvaða aðstæðum sem er. búin tveimur öflugum vélum sem vinna myndir á 600 megapixlum á sekúndu. Býður upp á frábæra suðhreinsun og byltingarkenndar tökustillingar myndavélarinnar.

    Ótrúlega hraðvirk raðmyndataka: skilar myndum í fullri upplausn við allt að 60 ramma á sekúndu, og því er nánast engin hreyfing svo hröð að ekki sé hægt að fanga hana. Þegar þú þarft að stilla fókus á eitt tiltekið myndefni – t.d. barn eða gæludýr – fylgir myndavélin myndefninu eftir og fangar 10 myndir á sekúndu í fullri upplausn*3.

    Skyndimynd á hreyfingu: gæddu ljósmyndirnar lífi með einum smelli. Nýtir úrvinnsluhraða myndavélarinnar til að taka upp hægmynd og ljósmynd á sama tíma. Þegar myndin hefur verið tekin sameinar myndavélin þessar tvær myndir og býr til „lifandi ljósmynd“ og fangar andartakið á nýjan hátt.

    Snjallmyndaval velur alltaf bestu myndina. Myndavélin tekur 20 myndir í hárri upplausn áður og eftir að þú sleppir lokaranum og vistar síðan fimm bestu myndirnar, sem þú getur svo valið úr. Mælt er með myndum út frá svipbrigðum, myndbyggingu og fókus.

    Ítarleg upptaka kvikmynda: gerir þér kleift að taka ljósmyndir í fullri upplausn*1 meðan á töku kvikmynda stendur, án þess að trufla upptökuna, og þú getur einnig tekið upp mjög hæga hægmynd til að skapa réttu áhrifin. Hægt er að taka upp kvikmyndir í fullum HD-gæðum og sjálfvirkur fókus með hlutagreini auðveldar þér að ná frábærum viðburðaríkum atriðum.

    Falleg og stílhrein hönnun: myndavélarhúsið er sterkbyggt en þó létt og er til í ýmsum litum. Myndavélin er með 7,5 cm, 460.000 punkta LCD-skjá með víðu sjónarhorni og hlífðargleri.

    Notandavænar aðgerðir: með skýrum valmyndum, fáum hnöppum, innbyggðu flassi og þægilegri stilliskífu með auðveldum aðgangi að tökustillingum. Sjálfvirka stillingin kemur í veg fyrir að þú þurfir að hafa áhyggjur af umhverfinu við myndatöku þar sem sjálfvirka umhverfisstillingin velur viðeigandi stillingar.

    Innbyggt flass býður upp á aukaljós þegar þess er þörf. Tilvalið til myndatöku innanhúss eða til að mýkja myndir þegar sólin er á bakvið myndefnið. Það er hannað samhliða myndavélinni og tryggir rétta lýsingu.

    Sveigjanlegt kerfi: 1 NIKKOR skiptanlegar linsur henta fyrir nánast hvaða myndefni sem er, þær eru byggðar fyrir upptöku hreyfimynda og eru smágerðar og afar meðfærilegar.

    FT1 millistykki: með því að festa það á 1-festingu myndavélarinnar er hægt að nota hvaða NIKKOR SLR-linsu sem er. Það er tilvalið að prófa nokkrar gerðir linsa þegar maður prófar sig áfram í myndatöku, og ef notuð er AF-S eða AF-I NIKKOR-linsa geturðu samt nýtt til fullnustu magnað sjálfvirkt fókuskerfi Nikon 1*2.

    Nikon 1 Short Movie Creator: býr sjálfkrafa til stuttmyndir úr ljósmyndum og kvikmyndum. Forritið er ótrúlega auðvelt í notkun og varðveitir gæði hverrar myndar og ramma efnisins sem þú tekur. Kvikmyndir geta verið allt að 30 mínútna langar og hægt er að velja úr fjölda stílsniða.

     
  • *1 Myndir í fullri upplausn í kvikmyndastillingu (myndhlutfall 16:9) 3.840 x 2.160 (1080/60i).

    *2 Frekari upplýsingar um samhæfni við NIKKOR-linsur með F-festingum er að finna í handbókinni.

    *3 Með því að nota sjálfgefnar stillingar geturðu tekið myndir á 10 römmum á sekúndu með því að ýta afsmellaranum alla leið niður. Þegar myndir eru teknar stillir myndavélin fókusinn á myndefnið innan AF svæðis fyrir miðju skjásins. AF-andlitsstilling er ekki tiltæk. Þú getur stillt myndatökuhraðann á 30 ramma á sekúndu og 60 ramma á sekúndu með því breyta stillingum myndavélarinnar í valmyndinni.

  •  

•Ef annað er ekki tekið fram eru allar tölur miðaðar við myndavél með fullhlaðna rafhlöðu sem notuð er í 20°C hita.

•Nikon áskilur sér rétt til að breyta tæknilýsingu á vélbúnaði og hugbúnaði sem lýst er í þessari handbók hvenær sem er og án fyrirvara. Nikon ber enga ábyrgð á skemmdum sem verða vegna mistaka sem þessi handbók kann að innihalda.

*1 U.þ.b. 13 rammar í raðmyndatöku með 10 römmum á sekúndu; u.þ.b. 12 rammar ef raðmyndataka er stillt á 30 ramma á sekúndu og 60 ramma á sekúndu. Samkvæmt niðurstöðum úr prófunum Nikon.

*2 Flutningur flögu er u.þ.b. 60 rammar á sekúndu.

Gerð myndavélarStafræn myndavél með skiptanlegum linsum
LinsufestingNikon 1-festing
Skilvirkt sjónsviðU.þ.b. 2,7 × brennivídd linsu (Nikon CX-snið)
Virkir pixlar10,1 milljónir
Myndflaga13,2 mm x 8,8 mm CMOS-flaga
Tvöfalt innbyggt rykhreinsikerfiRykhlífargler
Myndastærð (pixlar)Ljósmyndir (stillingar fyrir ljósmynd og snjallmyndaval, myndhlutfall 3: 2) • 3.872 × 2.592 • 2.896 × 1.944 • 1.936 × 1.296 Ljósmyndir (kvikmyndastilling, myndhlutfall 16: 9) • 3.840 × 2.160 (1080/60i) • 1.920 × 1.080 (1080/30p) • 1.280 × 720 (720/60p) Ljósmyndir (Skyndimynd á hreyfingu, myndhlutfall 16:9) • 3.840 x 2.160
Skráarsnið• NEF (RAW): 12 bita, þjappaðar • JPEG: Samhæft við JPEG-grunnlínu með fínni þjöppun (u.þ.b. 1: 4), venjulegri þjöppun (u.þ.b. 1: 8) eða grunnþjöppun (u.þ.b. 1: 16) þjöppun • NEF (RAW) + JPEG: Stök ljósmynd vistuð bæði á NEF (RAW)- og JPEG-sniði
Picture Control kerfiStandard (staðlað), Neutral (hlutlaust), Vivid (líflegt), Monochrome (einlitt/svarthvítt), Portrait (andlitsmynd), Landscape (landslag); hægt er að breyta völdu Picture Control; geymsla fyrir sérsniðið Picture Control
GeymslaSD (Secure Digital), SDHC- og SDXC-minniskort
SkráakerfiDCF (Design Rule for Camera File System) 2.0, DPOF (Digital Print Order Format), Exif (Exchangeable Image File Format for Digital Still Cameras) 2.3, PictBridge
Tökustillingarljósmynd (3: 2), Snjallmyndaval (3: 2), kvikmynd (HD 16: 9, hægmynd 8: 3), Skyndimyndir á hreyfingu (16: 9)
Samhæfar linsur1 NIKKOR-linsur fyrir 1-festingu
Gerð lokaraRafrænn lokari
Lokarahraði1/16.000-30 sek. í 1/3 EV skrefum, b-stilling, tími (þráðlaus ML-L3 fjarstýring er nauðsynleg)
Hraði samstillingar á flassiSamstillist við lokara við X=1/60 eða hægar
Afsmellistilling•Stök mynd, raðmyndataka, rafrænn (háhraða) •Sjálftakari, fjarstýring með seinkun, fjarstýring með hraðri svörun, sjálfvirk myndataka með reglulegu millibili
Tökuhraði*1• Rafrænn (háhraði): U.þ.b. 10, 30 eða 60 rammar/sek. • Aðrar stillingar: Allt að 5 rammar á sekúndu (stakur AF eða handvirkur fókus, S sjálfvirkni með forgangi lokara eða M handvirk stilling lýsingar, lokarahraði 1/250 eða hraðar og aðrar stillingar í sjálfgefnum gildum)
Sjálftakari2 sek., 5 sek, 10 sek.
Stillingar fjarstýringuFjarstýring með seinkun (2 sek.), fjarstýring með hraðri svörun
LjósmælingTTL-ljósmæling með myndflögu
Ljósmælingaraðferð• Fylki • Miðjusækin: Mælir 4,5 mm hring í miðjum rammanum • Punktur: Mælir 2 mm hring á völdu fókussvæði
StillingSérstilling með sjálfvirkni með sveigjanlegri stillingu; sjálfvirkni með forgangi lokara; sjálfvirkni með forgangi á ljósop; handvirk stilling; sjálfvirk umhverfisstilling
Leiðrétting á lýsingu–3 til +3 EV í þrepum upp á 1/3 EV
LýsingarlæsingSkærleiki læstur á mældu gildi með hnappinum AE-L/AF-L
ISO-ljósnæmi (æskilegur lýsingarstuðull)ISO 100–3200 í 1 EV skrefum. Er hægt að stilla á u.þ.b. 1 EV (jafngildi ISO 6400) yfir 3200; sjálfvirkt ISO (ISO 100–3200, 100–800, 100–400) er í boði
Virk D-LightingKveikt, slökkt
Sjálfvirkur fókusBlandaður sjálfvirkur fókus (AF-hlutagreinir/-birtuskilanemi); AF-aðstoðarljós
Linsumótor• Sjálfvirkur fókus (AF): Stakur AF (AF-S); samfellt stilltur AF (AF-C); sjálfvirkt val á AF-S/AF-C (AF-A); sífellt stilltur AF (AF-F) • Handvirkur fókus (MF)
AF-svæðisstillingEins punkts, sjálfvirk svæðisstilling, eltifókus á myndefni
Fókussvæði• AF með einum punkti: 135 fókussvæði • Sjálfvirk AF-svæðisstilling: 41 fókussvæði
FókuslæsingHægt er að læsa fókus með því að ýta afsmellaranum hálfa leið niður (stakur AF) eða ýta á hnappinn AE-L/ AF-L
AF-andlitsstillingKveikt, slökkt
Innbyggt flassInnbyggt flass: reist upp með því að renna til flassrofanum
StyrkleikatalaU.þ.b. 5 (m, ISO 100, 20°C)
Flassstýringi-TTL-flassstýring sem notar tiltæka myndflögu
FlassstillingFylliflass, hæg samstilling, rauð augu lagfærð, hæg samstilling með lagfæringu á rauðum augum, samstilling við aftara lokaratjald, hæg samstilling við aftara lokaratjald
Flassleiðrétting–3 til +1 EV í þrepum upp á 1/3 EV
Stöðuvísir flassinsKviknar þegar innbyggða flassið er að fullu hlaðið.
HvítjöfnunSjálfvirk, glóðarperulýsing, flúrljós, sólarljós, flass, skýjað, skuggi, forstillt handvirkt, allt nema forstillt handvirkt með fínstillingu
Ljósmæling fyrir kvikmyndirTTL-mæling með myndflögu
Ljósmælingaraðferð• Fylki • Miðjusækin: Mælir 4,5 mm hring í miðjum rammanum • Punktur: Mælir 2 mm hring á völdu fókussvæði
Rammastærð (pixlar)/upptökutíðniHD-kvikmyndir • 1.920 × 1.080/60i (59,94 ramma/sek. *2) • 1.920 × 1.080/30p (29,97 rammar/sek.) • 1.280 × 720/60p (59,94 rammar/sek.) Hægmyndir • 640 × 240/400 rammar/sek. (spilar 30p/29,97 ramma/sek.) • 320 × 120/1,200 rammar/sek. (spilað við 30p/29,97 ramma/sek.) Skyndimyndir á hreyfingu 1.920 X 1.080/60p (59,94 ramma/sek.) (spilað við 24p/23,976 ramma/sek.)
Hámarkstími upptöku1080/60i (20 mínútur), 1080/30p (20 mínútur), 720/60p (29 mínútur)
SkráarsniðMOV
KvikmyndaþjöppunH.264/MPEG-4 kóðun kvikmynda
HljóðupptökusniðAAC
HljóðupptökutækiInnbyggður víðóma hljóðnemi, næmi er stillanlegt
Skjár7,5 cm., u.þ.b. 460.000 punkta TFT LCD-skjár með birtustillingu
MyndskoðunaraðgerðirSkoðun á öllum skjánum og smámyndaskoðun (4, 9 eða 72 myndir eða dagatal) með aðdrætti í myndskoðun, spilun kvikmynda, skyggnusýning, stuðlarit, sjálfvirkur snúningur á mynd og einkunnagjöf
USBHáhraða USB
HDMI-úttakHDMI mini-tengi af C-gerð
25 studd tungumálArabíska, danska, enska, finnska, franska, gríska, hollenska, indónesíska, ítalska, japanska, kínverska (einfölduð og hefðbundin), kóreska, norska, portúgalska, pólska, rúmenska, rússneska, spænska, sænska, taílenska, tékkneska, tyrkneska, ungverska, úkraínska, þýska
RafhlaðaEin EN-EL20 Li-ion hleðslurafhlaða
StraumbreytirEH-5b straumbreytir; þarf að nota með EP-5C rafmagnstengi (seld sér)
Skrúfgangur fyrir þrífót(ISO 1222)
Ummál (B × H × D)U.þ.b. 106×61×29,8mm, fyrir utan ójöfnur
ÞyngdU.þ.b. 277 g með rafhlöðu og minniskorti en án loks á húsi; u.þ.b. 234 g (aðeins myndavélarhús)
UmhverfishitiHitastig: 0–40 °C/Raki: minna en 85% (engin þétting)
Meðfylgjandi aukabúnaður (hugsanlega breytilegt eftir landi og svæði)EN-EL20 Li-ion hleðslurafhlaða, MH-27 hleðslutæki, UC-E6 USB-snúra, EG-CP14 hljóð- og myndsnúra, AN-N1000 ól, BF-N1000 lok á hús, ViewNX 2/Short Movie Creator geisladiskur
LjósmyndirU.þ.b. 230
KvikmyndirU.þ.b. 70 mínútur af HD-myndefni við 1080/60i
 
 

Short Movie Creator

 

Notendavænt klippiforrit. Býr sjálfkrafa til stuttmyndir úr ljósmyndum, kvikmyndum og tónlist. Býður upp á úrval myndrænna áhrifa.

 
 
 

AN-N1000 ól

 

Nælonhandól fyrir Nikon 1 myndavélar.

 
 
 

MH-27 hleðslutæki

 

Hleðslutæki fyrir EN-EL20 litíum-ion rafhlöðu frá Nikon.

 
 
 

Endurhlaðanleg EN-EL20 litíumrafhlaða

 

Mjög fyrirferðalítil litíum-Ion hleðslurafhlaða.

 
 
 

ViewNX2

 

Allt í einum hugbúnaðarpakka. Getir þér kleift að flytja inn, flokka, breyta og deila myndum og myndskeiðum. Samhæft með Nikon Transfer. Samþætt við Nikon Image Space,

 
 
 

UC-E15 USB-snúra

 

USB-gagnasnúra fyrir tilteknar Nikon-myndavélar.

 
 
 

BF-N1000 lok á hús

 

Lok á hús fyrir Nikon 1 myndavélar.

 
 
 

Handól AH-N1000

 

Leðurhandól fyrir Nikon 1 myndavélar.

 
 
 

AN-N2000 ól

 

Leðurhálsól fyrir Nikon 1 myndavélar.

 
 
 

Vatnsheld Nikon 1 taska

 

Fyrirferðarlítið köfunarhylki fyrir Nikon 1 J1 og J2 myndavélarnar. Hylkið er vatnshelt niður að 40 m og gerir þér kleift að ná einstökum myndum og kvikmyndum neðansjávar með Nikon 1.

 
 
 

CF-N3000 umbúðaklútur

 

Þægileg bólstruð hlíf fyrir Nikon 1 myndavélina þína og 1 NIKKOR linsuna.

 
 
 

CB-N2000 taska fyrir hús

 

Leðurhulstur fyrir Nikon 1 J1 myndavélina.

 
 
 

CB-N2000 taska fyrir hús (Nikon 1 J1 + 1 NIKKOR VR 10-30mm linsa)

 

Leðurhulstur fyrir myndavél og linsu til að vernda Nikon 1 J1 myndavélina og 1 NIKKOR VR 10-30mm linsuna.

 
 
 

EP-5C rafmagnstengi

 

Rafmagnstengi til notkunar í tilteknum Nikon 1 myndavélum.

 
 
 

CB-N2000 taska fyrir hús (Nikon 1 J1 + 1 NIKKOR VR 10mm linsa)

 

Leðurhulstur fyrir myndavélarhús og linsu til að vernda Nikon 1 J1 myndavélina og 1 NIKKOR VR 10mm gleiðhornslinsu.

 
 
 

Millistykki fyrir þrífót TA-N100

 

Millistykki fyrir þrífót.

 
 
 

FT1 millistykki

 

Gerir þér kleift að nota alls konar NIKKOR linsur með F-festingu með Nikon 1 myndavélinni.

 
 
 

GR-N2000 grip

 

Laust myndavélargrip fyrir Nikon 1 J1 og J2 myndavélarnar. Tryggir öruggt grip á myndavélinni sem gerir myndatökuna þægilegri.