
Sterkbyggð, einföld og skemmtileg 10 megapixla COOLPIX S30 myndavél fyrir alla fjölskylduna.
Hlaðin sniðugum eiginleikum og svo einföld í notkun að ungir sem aldnir geta haft gaman af. Myndavélin er högg- og vatnsheld, hana má nota næstum hvar sem er og hún er hönnuð til þess að sitja vel í hvaða lófa sem er.
Í valmyndinni eru björt og litrík tákn svo auðvelt sé að vafra á milli þeirra og stórir hnappar sem aðeins þarf að ýta einu sinni á til að smella af mynd eða byrja að taka upp kvikmynd. Sjálfvirk vörn gegn óskýrleika tryggir skýrar myndir, jafnvel þegar vinir eða vandamenn eru á mikilli hreyfingu.
Skemmtilegar síur í myndavélinni geta haft ofan af fyrir öllum klukkutímunum saman því það er leikur einn að gefa myndunum sérstakan svip.
COOLPIX S30 – Velkomin í fjölskylduna.
Fjölskyldumyndavélin: COOLPIX S30 myndavélin er hönnuð til þess að sitja vel í hvaða lófa sem er og þar af leiðandi er lítið mál fyrir alla í fjölskyldunni að mynda sína sýn á heiminn.
Sterkbyggð:: vatnsheld að 3 metra dýpi og höggheld að 0,8 metrum, þessi myndavél er nógu sterkbyggð til að þola mikla notkun heima fyrir, á ströndinni og víðar.
Skýrar valmyndir: björt og litrík tákn þýða að auðvelt er að vafra á milli aðgerða.
Skemmtilegar síur: með myndavélarsíunum er lítið mál að gefa hverri mynd sinn eigin svip. Dæmi um síur eru Fiskauga og Litaval, þar sem hægt er að bæta lit við einlita útgáfu myndarinnar.
NIKKOR 3x optísk aðdráttarlinsa (29–87 mm): tilvalin til að taka nærmyndir af undrum hversdagsins, andlitsmyndir af vinum og hópmyndir af fjölskyldunni; þessi hárnákvæma linsa nær skörpum myndum með léttum leik.
Skýr 6,7 sm u.þ.b. 230.000 punkta LCD-skjár með hárri upplausn veitir skjárinn skýra mynd fyrir einfaldar tökur. Nógu stór til að deila árangrinum með vinum og fjölskyldu.
10 MP: 10-megapixla upplausn þýðir að þú getur tekið ítarlegar myndir sem halda skerpu sinni jafnvel eftir að þær hafa verið stækkaðar töluvert.
Vörn gegn óskýrleika: Auðvelt er að ná skýrum ljósmyndum þökk sé sjálfvirka eiginleikanum sem bætir upp fyrir óskýrleika í myndum. e-VR (titringsjöfnun) bætir upp fyrir hristing myndavélarinnar í rauntíma og skilar frábærum myndum. Hreyfiskynjun bætir sjálfkrafa upp fyrir hreyfingu myndefnis og myndavélar og skilar skörpum myndum af myndefni á mikilli hreyfingu.
Handhæg: samhverf hönnun á myndavélarhúsinu gerir það að verkum að auðvelt er að halda á myndavélinni og hönnunin kemur í veg fyrir að einhver smelli af mynd sem væri fullkomin ef ekki væri fyrir puttann sem fór fyrir linsuna.
Einn hnappur-ein aðgerð: stórir hnappar sem þarf bara að snerta einu sinni til að smella af mynd eða byrja að taka upp kvikmynd.
Skýrar 720p kvikmyndir: fangaðu lífið á kvikmynd með einum hnappi. Myndskeið úr kvikmyndum líta jafn vel út þegar þau eru spiluð á LCD skjá myndavélarinnar og þau gera í sjónvarpinu eða á tölvuskjánum.
Innbyggt flass: með sjálfvirku flassi er auðveldara að ná skýrum myndum við léleg birtuskilyrði. Flassið er vel staðsett þannig að það er engin hætta á að þú hyljir það óvart.
AA rafhlöðustærðir: myndvélin gengur fyrir tveimur rafhlöðum í AA stærð sem hægt er að fá hvar sem er í heiminum.
Samhæft við SD-kort (fylgja ekki): SD-kort með góðu geymsluplássi getur vistað allt sem mögulega er hægt að mynda á einum degi og meira til. Þú einfaldlega stingur kortinu í SD-rauf myndavélarinnar til að geyma þúsundir mynda eða marga klukkutíma af kvikmyndum.
Slökkt sjálfvirkt myndavélin slekkur á sér eftir þrjár mínútur ef ekkert er aðhafst til að spara rafhlöðurnar.
*Allar tölur eru miðaðar við myndavél með fullhlaðna Li-ion-hleðslurafhlöðu sem notuð er í 25°C hita (77°F), nema annað sé tekið fram. **Samhæfist MIL-STD 810F Method 516.5-Shock. | |
| Vöruheiti | COOLPIX S30 |
| Gerð | Smágerð stafræn myndavél |
| Virkir pixlar | 10,1 milljón |
| Myndflaga | 1/3 tommu CCD-flaga; heildarfjöldi pixla u.þ.b. 10,44 milljónir |
| Linsa | Optískur 3x aðdráttur, NIKKOR-linsa |
| Brennivídd | 4,1-12,3 mm (sýnilegt horn samsvarar 29,1-87,3 mm linsu á 35 mm [135] sniði) |
| f/-númer | f/3.3–5.9 |
| Bygging | 6 einingar í 5 flokkum |
| Stafrænn aðdráttur | Allt að 4x (sýnilegt horn samsvarar u.þ.b. 349 mm linsu á 35 mm [135] sniði) |
| Titringsjöfnun | Titringsjöfnun (ljósmyndir) |
| Sjálfvirkur fókus (AF) | Birtuskilanemi AF |
| Fókussvið (frá hlífðargleri) | : [W]: U.þ.b. 30 sm í óendanlegt, [T]: U.þ.b. 50 sm í óendanlegt Taktu nærmyndir: U.þ.b. 5 sm í óendanlegt (í gleiðhornsstillingu) |
| Val á fókussvæði | Miðja, andlitsgreining |
| Skjár | 6,7 sm, u.þ.b. 230.000 punkta, TFT LCD-skjár með 5 stiga birtustillingu |
| Umfang ramma (tökustilling) | U.þ.b. 98% lárétt og 98% lóðrétt |
| Umfang ramma (spilunarstilling) | U.þ.b. 100% lárétt og 100% lóðrétt |
| Miðill | Innra minni (u.þ.b. 47 MB), SD/SDHC/SDXC minniskort |
| Skráakerfi | Samhæft við DCF, Exif 2,3 og DPOF |
| Skráarupplýsingar | Ljósmyndir: JPEG Skilaboð: WAV Kvikmyndir: AVI (Hreyfing-Samhæft við JPEG) |
| Myndastilling (myndagerðir) | 10M [3648 x 2736] 4M [2272 x 1704] 2M [1600 x 1200] |
| Tökustillingar | Sjálfvirkt, Velja snið („miða og smella“, nærmyndir, neðansjávarmyndir, röð af myndum, myndir með tilteknu millibili, matarljósmyndun, auðkenna liti, taka mjúkar myndir, þrívíddaruppstilling, flugeldaljósmyndun) |
| Taka myndaröð. | Allt að 4 myndir á 1,5 r/sek. |
| Kvikmynd | Stór (720p) (sjálfgefin stilling): 1280 x 720/u.þ.b. 30 r/sek., lítil (640): 640 x 480/u.þ.b. 30 r/sek. |
| ISO-ljósnæmi (Venjuleg ljósnæmisafköst) | Auto (sjálfvirk mögnun frá ISO 80 til 1600) |
| Ljósmæling | 256-hluta fylkisljósmæling, miðjusækinn (stafrænn aðdráttur minni en 2x, punktur (stafrænn aðdráttur 2x eða meiri) |
| Stjórn á lýsingu | Sjálfvirkt lýsingarkerfi með hreyfiskynjun og lýsingaruppbót (-2,0 til +2,0 EV í 1/3 EV skrefum) |
| Lokari | Vélknúinn og rafstýrður lokari |
| Hraði | 1/2000 -1 sek. (4 sek. ef stillt er á flugeldaljósmyndun) |
| Ljósop | Rafstýrð ND-sía (-3 AV) val |
| Drægi | 2 skref (f/3,3 og f/9,3 [W]) |
| Tímamælir | U.þ.b. 10 sek., brosstilling |
| Drægi (u.þ.b.) (ISO-ljósnæmi: Auto) | [W]: 0,3 til 3,5 m (1 til 11 fet) [T]: 0,5 til 2,0 m (1 fet 8 tommur til 6 fet 7 tommur) |
| Stjórnun á flassi | Sjálfvirkt flass með TTL og prófun með flassi |
| Viðmót | Háhraða USB |
| Upplýsingafærsla | MTP, PTP |
| Flutningur myndefnis | Hægt er að velja á milli NTSC og PAL |
| I/O tengi | Hljóð- og myndflutningur (A/V); stafrænn I/O (USB) |
| Studd tungumál | Arabíska, brasilísk portúgalska, kínverska (einfölduð og hefðbundin, tékkneska, danska, hollenska, enska, finnska, franska, þýska, gríska, hindí, ungverska, indónesíska, ítalska, japanska, kóreska, norska, pólska, portúgalska (evrópsk og brasilísk), rúmenska, rússneska, spænska, sænska, tælenska tyrkneska, úkraínska, víetnamska |
| Aflgjafar | tvær LR6/L40 (AA-stærð) alkaline-rafhlöður, tvær FR6/L91 (AA-stærð) litíum-rafhlöður, tvær Ni-MH EN-MH2-hleðslurafhlöður (seldar sér) |
| Endingartími rafhlöðu | Ljósmyndir*: U.þ.b. 240 rammar með alkaline rafhlöðum U.þ.b. 700 rammar með litíum rafhlöðum U.þ.b. 410 rammar með EN-MH2 rafhlöðum Kvikmyndir: U.þ.b. 50 rammar með alkaline rafhlöðum (stórar 720p)) U.þ.b. 3 klst. og 45 mín. með litíum rafhlöðum (stórar 720p)) U.þ.b. 2 klst. og 25 mín. með EN-MH2 rafhlöðum (stórar 720p)) Hver skráarstærð fyrir staka kvikmynd er 4 GB og hámarkslengd fyrir staka kvikmynd er 29 mínútur, jafnvel þó að nóg pláss sé á minniskortinu fyrir lengri upptöku. |
| Skrúfgangur fyrir þrífót | 1/4 (ISO 1222) |
| Mál (B × H × D) | U.þ.b. 101,9 x 64,8 x 39,4 mm (4,1 x 2,6 x 1,6 tommur) (fyrir utan ójöfnur) |
| Þyngd | U.þ.b. 214 gr. (með rafhlöðu og SD-minniskorti) |
| Hitastig | 0°C til 40°C (32°F til 104°F) |
| Raki | Minni en 85% (engin þétting) |
| Vatnsheld | JIS/IEC jafngildir varnarflokki 8 (IPX8) (við prófunaraðstæður) Hægt að taka myndir í vatni á allt að 3 m dýpi (9,8 fet) og í 60 mínútur |
| Rykheld | JIS/IEC jafngildir varnarflokki 6 (IP6X) (við prófunaraðstæður) |
| Höggheld | Stóðst prófunaraðstæður** |
| Aukabúnaður sem fylgir | Myndavélaról, LR6/L40 (AA-stærð) alkaline-rafhlöður (x2), UC-E16 USB snúra, bursti, ViewNX 2 geisladiskur, geisladiskur með uppflettiefni |
| Aukabúnaður | EN-MH2-B2 NiMH-hleðslurafhlöður (sett með tveimur EN-MH2 rafhlöðum), EN-MH2-B4 NiMH-hleðslurafhlöður (sett með fjórum EN-MH2 rafhlöðum), MH-72 hleðslutæki (tvær raufar til að hlaða EN-MH2 NiMH-rafhlöður) og MH-73 hleðslutæki (fjórar raufar til að hlaða EN-MH2 Ni-MH-rafhlöður), EG-CP14 hljóð- og myndsnúra |
UC-E16 USB-snúra

USB-gagnasnúra fyrir tilteknar Nikon-myndavélar. Gerir þér kleift að tengja myndavélina við tölvu. U.þ.b. 0,5 m að lengd.
ViewNX2

Allt í einum hugbúnaðarpakka. Getir þér kleift að flytja inn, flokka, breyta og deila myndum og myndskeiðum. Samhæft með Nikon Transfer. Samþætt við Nikon Image Space,
BU-1

Bursti fyrir ákveðnar COOLPIX myndavélar. Bursti til að þrífa hlífina yfir rafhlöðuhólfinu. Notið til að viðhalda vatnsvörninni.
AN-CP19 ól

Úlnliðsólin gerir notkun myndavélarinnar öruggari.
MH-73 hleðslutæki

Hleðslutæki fyrir Ni-MH rafhlöður frá Nikon.
EN-MH2-B4 Ni-MH hleðslurafhlöður

EN-MH2-B4: Fjórar Ni-MH hleðslurafhlöður.
MH-72 hleðslutæki

Hleðslutæki fyrir Ni-MH rafhlöður frá Nikon.
COOLPIX neoprene bakpoki fyrir stráka

COOLPIX neoprene bakpoki fyrir stelpur

EG-CP14 AV-snúra

AV-snúra fyrir tilteknar Nikon-myndavélar. Gerir þér kleift að tengja myndavélina við sjónvarp eða myndbands-/DVD-/HD-upptökutæki.
EN-MH2-B2 Ni-MH hleðslurafhlöður

EN-MH2-B2: Tvær Ni-MH hleðslurafhlöður

















