Ákvæði og skilmálar um notkun á þessu vefsvæði
1. Gildi
Þetta vefsvæði (hér eftir nefnt vefsvæðið) er birt af Nikon Europe BV og dótturfyrirtækjum þess (hér eftir nefnt Nikon). Öllum er frjálst að vafra um það. Aðgangur að og notkun vefsvæðisins eru háð eftirfarandi ákvæðum og skilmálum um notkun og öðrum viðeigandi og gildandi lögum. Á þessu vefsvæði eru að auki að finna ákveðnar lagalegar upplýsingar. Með því að fara inn á og/eða nota vefsvæðið samþykkir þú að hlíta þeim ákvæðum og skilmálum sem hér koma um notkunina. Lestu vandlega þessi ákvæði og skilmála. Farið verður með persónuleg gögn sem þú kannt að leggja fram í gegnum vefsvæðið í samræmi við yfirlýsingu okkar um gagnaleynd.
2. Takmarkanir á notkun sem tengjast hugverkarétti
Vefsvæðið inniheldur mikið magn efnis sem varið er af evrópskum og alþjóðlegum höfundarrétti og öðrum hugverkarétti, þ.m.t. (en ekki einskorðað við) Nikon-vörumerki, vöruheiti, firmamerki, ljósmyndir, myndskeið, tónlist, texta og grafíska hönnun vefsvæðisins (hér eftir nefnt efni). Með fyrirvara um aðrar takmarkanir, sem fram koma í viðeigandi lögum, gilda eftirfarandi takmarkanir á notkun þessa vefsvæðis til varnar þessum rétti:
- Ekki má afrita neinn hluta vefsvæðisins rafrænt eða á annan hátt nema að því marki sem nauðsynlegt telst til að sækja upplýsingar á vefsvæðið í gegnum internetið og nota þá þjónustu sem þar er boðið upp á. Eftirgerð á hluta þessa vefsvæðis til birtingar á öðrum vefsvæðum er stranglega bönnuð.
- Vörumerki, vöruheiti, þjónustumerki og firmamerki Nikon, eins og þau eru notuð á vefsvæðinu, má ekki birta eða nota á neinn hátt án skriflegs leyfis frá Nikon.
- Nikon gefur þér leyfi til að nota vefsvæðið og efni þess til persónulegra nota eingöngu ─ svo lengi sem þú fylgir öllum yfirlýsingum um höfundarrétt og annan eignarétt ─ og tekur með öllu fyrir notkun á vefsvæðinu og efni þess í viðskiptalegum tilgangi.
- Að öllu jöfnu má setja tengla í vefsvæðið, svo lengi sem þeir liggja á forsíðunni. Tenglar sem leiða beint í efni á öðrum hlutum vefsvæðisins eru bannaðir, nema Nikon hafi veitt leyfi fyrir því.
- Sjálfvirk yfirferð yfir vefsvæðið (t.d. með „könguló") í þeim tilgangi að sækja á kerfisbundinn hátt upplýsingar þaðan eða til að tengja efni vefsvæðisins við önnur vefsvæði er bönnuð.
- Bannað er koma upp tengli á þann hátt að netnotandi sjái vefsvæðið í ramma annars vefsvæðis.
3. Vörumerki
Nikon er skráð alþjóðlegt vörumerki Nikon Corporation. Önnur vörumerki, firmamerki og þjónustumerki, sem birt eru á vefsvæðinu, kunna að vera skráð vörumerki eða óskráð vörumerki Nikon, samstæðufyrirtækja eða tengdra fyrirtækja þess.
4. Óleyfileg notkun
Notkun á vefsvæðinu eða efni þess, sem hamlar notkun annarra notenda vefsvæðisins, brýtur á rétti þeirra eða truflar á annan hátt eðlilega virkni vefsvæðisins, eða hefur áhrif á upplýsingar, sem birtar eru á vefsvæðinu og/eða hugbúnað, sem stýrir virkni þess, er bönnuð. Bannað er að nota vefsvæðið undir fölsku nafni eða fara fram hjá hverjum þeim öryggisráðstöfunum sem notaðar eru fyrir lokaða hluta vefsvæðisins. Notkun vefsvæðisins eða efni þess, sem með réttu getur talist afbrot, eða hvatning til afbrots, leiðir af sér skaðabótaskyldu eða sem á annan hátt fer gegn lögum viðkomandi lands er bönnuð.
5. Tenglar í vefsvæði þriðja aðila
Þetta vefsvæði kann að innihalda tengla í önnur vefsvæði utan lénsins [the ● INSERT WEBSITE ADDRESS OR INSERT: this Website]. Önnur skilyrði kunna að eiga við um þessa tengla, eins og tekið er fram á þeim síðum. Tenglar á vefsvæði þriðja aðila eru hér eingöngu til þægindaauka. Notkun þín á þeim eru á þína eigin ábyrgð. Nikon ber enga ábyrgð á efni á síðum þriðja aðila.
6. Bótaábyrgð
Hvorki Nikon né aðrir aðilar, sem tóku þátt í að hanna, búa til og birta vefsvæðið, eru bótaskyldir vegna taps, skemmda eða kostnaðar, né annarra beinna, tilfallandi, afleiddra eða sérstakra skaðabóta eða refsibóta, sem hljótast af notkun þinni á vefsvæðinu eða þjónustu á því (þ.m.t. skaðabótaskylda vegna seinkana eða rangfærslna í sendingu á upplýsingum, truflun, hléum eða lokum á birtingu vefsvæðisins) nema slíkt tjón stafi af vísvitandi misferli af hálfu Nikon.
Nikon ber enga bótaábyrgð vegna skemmda á eða vírusa í tölvunni þinni, sem tengja má aðgangi að, notkun á eða vafri um vefsvæðið eða notkun á efni þess.
Ekkert í þessum ákvæðum og skilmálum um notkun útilokar eða takmarkar bótaábyrgð Nikon sem ekki er hægt að útiloka eða takmarka samkvæmt gildandi lögum.
7. Ábyrgð
Þegar þú notar og flettir í gegnum vefsvæðið er það á þína eigin ábyrgð. Allt á vefsvæðinu er lagt fram „eins og fyrir kemur" og „samkvæmt framboði", nema annað sé skýrt tekið fram.
Nikon undanskilur sig alfarið allri ábyrgð, hvort sem er beinni eða óbeinni, þar með talið (en einskorðast ekki við) óbeinni ábyrgð á ásættanlegum gæðum, notagildi í ákveðnum tilgangi eða helgi eignarréttar, að því marki sem lög leyfa.
Mikil áhersla hefur verið lögð á gæði efnisins og nákvæmni upplýsinga sem birtar eru á vefsvæðinu. Hins vegar ábyrgist Nikon ekki að vefsvæðið og upplýsingar þess uppfylli kröfur notandans um hnökralausa virkni, hraða, öryggi eða réttmæti, né ábyrgist Nikon árangur af notkun vefsvæðisins.
Allt efni og/eða gögn sem hlaðið er niður eða á annan hátt móttekið með notkun á eða af vefsvæðinu er á þína eigin ábyrgð.
8. Bætur
Þú berð ábyrgð á efninu í ljósmyndamöppunni þinni sem vistuð er á netþjóni Nikon eða öðru efni sem dreift er í gegnum vefsvæðið eða þjónustu á því. Þú berð ábyrgð á allri bótaskyldu sem hlýst af notkun þinni á vefsvæðinu eða þjónustu á því. Þú samþykkir að bæta Nikon og tengdum fyrirtækjum Nikon tap, skaða eða skaðabætur sem stofnað er til og hverja þá kröfu eða málarekstur sem hafinn er eða er hótað gegn Nikon eða tengdum fyrirtækjum þess vegna notkunar þinnar á vefsvæðinu eða þjónustu á því.
9. Ábyrgð á notandanafni og aðgangsorði
Þegar þú leggur fram upplýsingar við notkun á eða umsókn um notandanafn og aðgangsorð samþykkir þú að leggja fram sannar, réttar, nýjar og heildstæðar upplýsingar eins og farið er fram á í skráningareyðublöðum sem Nikon lætur þér í té í gegnum vefsvæðið eða á annan hátt. Ef upplýsingarnar sem þú leggur fram eru ósannar, rangar, gamlar eða ófullnægjandi kann Nikon að segja upp eða gera hlé á aðgangi þínum að viðeigandi hluta vefsvæðisins.
Notandanafnið og aðgangsorðið, sem þér eru látin í té fyrir aðgang að ákveðinni þjónustu sem boðin er á vefsvæðinu, eru trúnaðarmál og má ekki greina frá eða deila með þriðja aðila eða nota á annan hátt í óheimilum tilgangi. Þú berð fulla ábyrgð á að halda notandanafni og aðgangsorði leyndu og berð einnig fulla ábyrgð á öllum aðgerðum sem framkvæmdar eru í gegnum notandanafn þitt og aðgangsorð.
Þú samþykkir að notkun á aðgangsorði og notandanafni jafngildir heimild þinni. Þú gerir þér grein fyrir því að þú ert bundinn af hverri þeirri aðgerð sem skráð er í gegnum notandanafn þitt og aðgangsorð. Af þessum sökum ættir þú að gera þér grein fyrir mikilvægi þess að grípa til öryggisráðstafana til að tryggja að notandanafnið og aðgangsorðið sem þér eru látin í té séu aðeins aðgengileg aðilum með heimild.
Þú samþykkir:
- að tilkynna Nikon tafarlaust um óheimila notkun á notandanafni þínu eða aðgangsorði eða öðrum brotalömum á öryggi, og
- að tryggja að þú skráir þig út af notandanafni þínu í lok hverrar lotu.
10. Almennt
Nikon er heimilt hvenær sem er að endurskoða eða uppfæra þessi ákvæði og skilmála um notkun. Þú er bundinn af allri slíkri endurskoðun og ættir því að lesa þessa síðu reglulega til að kynna þér gildandi ákvæði og skilmála um notkun.
11. Gildandi lög
Þessi ákvæði og skilmálar um notkun stjórnast af og eru túlkuð samkvæmt hollenskum lögum. Dómstólar Amsterdam hafa einkalögsögu í deilum sem kunna að koma upp vegna eða í tengslum við þessi ákvæði og skilmála um notkun.
Póstföng:
Nikon Europe B.V.
New Yorkstraat 66
1175 RD Lijnden
P.O. Box 150
1170 AD
Badhoevedorp
Holland
VSK-númer NL 002288734B01
Skráningarnúmer 34036589
Höfundarréttur

