Yfirlýsing um gagnaleynd
Nikon Europe B.V, dótturfyrirtæki þess og dreifingaraðilar (hér eftir nefnd einu nafni „Nikon“) virða rétt þinn til einkalífs og skuldbinda sig til að lúta þeim lögum og reglugerðum sem varða verndun persónuupplýsinga. Tilgangur þessarar Yfirlýsingar um gagnaleynd er að kynna þér hvernig notkun þeirra persónulegu upplýsinga sem Nikon safnar er háttað og hvernig þú getur breytt eða látið eyða hvers kyns upplýsingum um þig sem við geymum.
1. Nikon skuldbindur sig til að nota þær upplýsingar sem þú gefur upp á þessu vefsvæði í samræmi við þessa Yfirlýsingu um gagnaleynd.
Nikon safnar einungis persónulegum gögnum sem látin hafa verið Nikon í té af fúsum og frjálsum vilja eftir ýmsum leiðum, eins og við vöruskráningu á netinu, aðstoð í þjónustumiðstöðvum og viðgerð á vörum. Við notum þau gögn sem við fáum í hendur til að veita umbeðna þjónustu (s.s. við viðgerðir vara) eða til að veita þér upplýsingar um vörur og þjónustu sem þú hefur beðið um. Þetta getur falið í sér að samband er haft við þig í tölvupósti, síma, með SMS eða bréfleiðis. Ef um kynningartilboð er að ræða getur það falið í sér staðfestingu á því hvort þú uppfyllir kröfur tilboðsins, eða tilkynningar sem eru stjórnunarlegs eðlis. Nikon gæti flutt persónulegar upplýsingar til tengdra fyrirtækja og/eða þriðja aðila sem Nikon ræður til að inna af hendi tilgreinda þjónustu, eins og viðgerð á vörum. Hvers kyns gögn sem flutt eru til við slíkar kringumstæður munu takmarkast við þá notkun sem tiltekin var þegar gögnunum var safnað og verða ekki notuð í öðrum tilgangi en þeim sem tilgreint er í þessari Yfirlýsingu um gagnaleynd.
2. Tilkynningar til þín um tilboð, þjónustu og vörur.
Hafir þú gefið til kynna að þú viljir fá slíkar upplýsingar gæti Nikon, fyrirtæki tengt okkur eða þriðji aðili sem er samningsbundinn Nikon einnig haft samband við þig með tölvupósti eða á annan hátt (bréfleiðis eða í síma ef þær upplýsingar eru til staðar) til að kynna þér þjónustu, vörur, samkeppni eða tilboð sem tengjast beint Nikon eða ímyndarvörum þess og tengdri þjónustu. Ef þú vilt ekki lengur fá slíkar upplýsingar getur þú tilkynnt það með því að hafa samband við Nikon í gegnum evrópska þjónustuverið okkar á slóðinni www.europe-nikon.com/support, eða sent skriflega beiðni til CRM Manager, Nikon Europe BV 66 New Yorkstraat, 1175 RD Amsterdam, Hollandi.
3. Kökur og vöktun
Nikon mun hugsanlega safna upplýsingum um notkun þína á vefsvæðinu. Slík upplýsingasöfnun er gerð með kökum. Kökur eru upplýsingabútar sem vafrinn þinn geymir á hörðum diski tölvunnar þinnar. Þegar þú ferð aftur á vefsvæðið mun miðlari okkar bera sjálfkrafa kennsl á kökuna og veita okkur upplýsingar um síðustu heimsókn þína. Flestir vafrar samþykkja kökur sjálfkrafa. Yfirleitt er hægt að breyta stillingum vafra þannig að hann hætti að samþykkja þær sjálfkrafa. Ef þú vilt ekki taka við kökum geturðu samt sem áður notað flesta eiginleika sem vefsvæði okkar býður upp á. Við gætum einnig vaktað vefsvæðið til að meta vinsældir einstakra hluta þess og bæta umferð notenda um svæðið, en slíkum upplýsingum verður ekki blandað saman við persónulegar upplýsingar þínar.
Á þeim hluta vefsvæðisins sem ætlaður er fyrir skráða meðlimi eru kökur notaðar til að tryggja að kennsl séu borin á vafrann þinn og þig sem notanda á öllu svæðinu með því að geyma upplýsingar um meðlimanúmer þitt og lotunúmer í kökunni. Kakan sem notuð er í þessum tilgangi er tímabundin og er eingöngu geymd í vafranum þar til þú yfirgefur vefsvæðið. Þessi notkun á kökum tryggir að þú sért fljótari að fletta á milli síðna og getir notað alla eiginleika. Athugaðu að sé slökkt á kökum í vafranum er ekki víst að þú fáir aðgang að þeim hluta vefsvæðisins sem reiðir sig á kökur.
4. Öryggi og upplýsingagjöf
Við höfum gert öryggisráðstafanir til að tryggja verndun persónulegra upplýsinga þinna. Við notum dulritun þar sem það á við ásamt eldvegg til að koma í veg fyrir aðgang þriðja aðila að persónulegum upplýsingum þínum.
Til að geta uppfyllt viðeigandi lög og orðið við lögmætum stjórnvaldsbeiðnum áskiljum við okkur rétt til að sækja og afhenda persónugreinanlegar upplýsingar til að geta rekið kerfi okkar með fullnægjandi hætti eða vernda viðskiptavini okkar og okkur sjálf. Við áskiljum okkur einnig rétt til að afhenda persónugreinanlegar upplýsingar til þriðja aðila berist kæra varðandi notkun þína á vefsvæðum okkar eða þjónustu.
5. Réttindi
Þú hefur rétt á því að fá aðgang að, leiðrétta, uppfæra eða eyða gögnum með því að fá aðgang að tengli á upplýsingasíðu þinni, með því að senda beiðni til þjónustuvers okkar í Evrópu á slóðinni www.europe-nikon.com/support eða með því að senda skriflega beiðni til CRM Manager, Nikon Europe BV 66 New Yorkstraat, 1175 RD Amsterdam, Hollandi. Athugaðu að ef þú vilt fá afrit af upplýsingum sem geymdar eru um þig munum við fara fram á auðkenningu. Nikon áskilur sér rétt til að innheimta lágt umsýslugjald í slíkum tilvikum.
6. Tímalengd
Við geymum persónulegar upplýsingar þínar einungis í þann tíma sem þarf til að geta veitt þjónustu eða vörur sem þú hefur beðið um eða hvern þann viðbótartíma sem krafist er skv. lögum.
7. Breytingar
Nikon áskilur sér rétt til að breyta þessari Yfirlýsingu um gagnaleynd og mun láta þig vita af hvers kyns efnisbreytingum sem hafa áhrif á notkun okkar á persónulegum gögnum þínum.
8. Aðrar upplýsingar
Ákveðin úrvinnsla á persónulegum gögnum þínum gæti átt sér stað utan Evrópska efnahagssvæðisins, eingöngu í þeim tilgangi sem lýst er að ofan og vegna samstæðustýringar. Þetta felur í sér flutning á gögnum til staða utan Evrópska efnahagssvæðisins. Nikon heitir því að í slíkum tilvikum tryggi fyrirtækið að nauðsynlegar ráðstafanir og viðeigandi stýring sé til staðar til að verja trúnað og öryggi gagna þinna og að slíkur gagnaflutningur fari fram í samræmi við lög og reglugerðir um gagnavernd.
Nikon Europe BV rekur þetta vefsvæði. Fyrirtækisnr.: [færðu inn númer]. Skráð skrifstofa: Nikon Europe BV 66 New Yorkstraat, 1175 RD Amsterdam, Hollandi.

